Erlent

Hefur áhyggjur af fjárdrætti

VLADIMÍR PÚTÍN
VLADIMÍR PÚTÍN

MOSKVA, AP Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur skipað sérstaka nefnd til að hafa umsjón með eyðslu vegna undirbúnings Vetrar-ólympíuleikanna í Sochi í Suður-Rússlandi árið 2014. Forsetinn segir að þurft hafi að skipa í nefndina til að sjá til þess að opinberu fé sé eytt skynsamlega og til að koma í veg fyrir fjárdrátt.



Stjórn Pútíns hefur heitið því að eyða rúmum 70 milljónum króna til að umbreyta Sochi fyrir Vetrarólympíuleikana og verða flest þeirra mannvirkja sem þarf til að halda leikana byggð frá grunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×