Erlent

Svartur skjár hjá DR í júlí?

MYND/Pjetur

Svo gæti farið að Danir horfðu á svartan sjónvarpsskjá þegar þeir stilla á ríkissjónvarpsstöðina Danmarks Radio frá og með 1. júlí. Ástæðan fyrir því er sú að upp úr kjaraviðræðum slitnaði milli forsvarsmanna Danmarks Radio og Bandalags háskólamanna og ákvað forysta DR í framhaldinu að setja þá starfsmenn sem eru félagar í bandalaginu í verkbann frá og með 1. júlí.

Alls er um að ræða 450 manns og segir varaformaður Bandalags háskólamanna í samtali við Berlingske Tidende að þetta geti þýtt að engar útsendingar verði á vegum stöðvarinnar eða að endursýna þurfi gamalt efni.

Þetta eru ekki einu vandamál forsvarsmanna Danmarks Radio því þeir hafa mætt mikilli mótspyrnu í niðurskurðaraðgerðum sem grípa þarf til eftir að bygging nýrra höfuðstöðva á Amager fór langt fram úr fjárhagsáætlunum. Stendur meðal annars til að segja upp um 300 manns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×