Erlent

Heimsbyggðin stendur í þakkarskuld við Bandaríkin

Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar

Heimsbyggðin stendur í þakkarskuld við Bandaríkin fyrir leiðtogahlutverk þeirra í baráttunni gegn alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, lýsti þessu yfir í upphafi fyrstu opinberri heimsóknar sinnar til Bandaríkjanna í morgun.

Ástandið í Írak, Afghanistan, Miðausturlöndum, Darfur og Kosovo eru talin

vera helstu mál á dagskrá þessa fyrsta fundar Gordon Browns og George Bush, Bandaríkjaforseta í Camp David í dag, auk baráttunnar gegn

gróðurhúsaáhrifum.

Brown átti kvöldverð með Bush eftir komu sína til Bandaríkjanna í gærkvöldi og sagði hann fyrir fundinn að sambandið við Bandaríkin væri mikilvægasta tvíhliða samband Bretlands við annað ríki og að tengslin milli landanna yrðu efld enn frekar.

Fréttaskýrendur vilja þó meina að samskipti Browns og Bush séu ópersónulegri og af öðrum toga en á samskipti Bush og Tony Blairs, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Er meðal annars vísað til þess að búist er við því að David Milliband, utanríkisráðherra Bretlands og Condolezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna muni einnig sitja fund leiðtoganna í dag, þegar Bush og Blair kusu frekar að ræða saman í meira einrúmi.

Hátt settur embættismaður í Breska utanríkisráðuneytinu sagði fyrr í

mánuðinum að utanríkisstefna landanna verði ekki lengur eins samstíga og áður og víst er að Brown hefur hitt bæði leiðtoga Frakklands og Þýskalands, og aðalritara Sameinuðu Þjóðanna áður en hann fór í þessa heimsókn til Bandaríkjanna í dag.

Brown er undir þrýstingi frá breskum kjósendum og þingmönnum um að hefja brottflutning breskra hermanna frá Írak fljótlega auk þess sem margir samlandar hans vilja sjá fangelsi Bandaríkjanna í Guantanamo flóa á Kúbu lagt niður Hins vegar er líklegt að Bandaríkjaforseti muni reyna að tryggja áframhaldandi veru breskra hermanna í Írak, í viðræðum sínum við Brown í dag.

Eftir leiðtogafundinn í dag, heldur Brown til Washington. Þar mun hann eiga viðræður við fulltrúa beggja flokka á Bandaríkjaþingi og í Öldungadeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×