Heimsbyggðin stendur í þakkarskuld við Bandaríkin Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar 30. júlí 2007 07:32
Heimsbyggðin stendur í þakkarskuld við Bandaríkin fyrir leiðtogahlutverk þeirra í baráttunni gegn alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, lýsti þessu yfir í upphafi fyrstu opinberri heimsóknar sinnar til Bandaríkjanna í morgun. Ástandið í Írak, Afghanistan, Miðausturlöndum, Darfur og Kosovo eru talin vera helstu mál á dagskrá þessa fyrsta fundar Gordon Browns og George Bush, Bandaríkjaforseta í Camp David í dag, auk baráttunnar gegn gróðurhúsaáhrifum. Brown átti kvöldverð með Bush eftir komu sína til Bandaríkjanna í gærkvöldi og sagði hann fyrir fundinn að sambandið við Bandaríkin væri mikilvægasta tvíhliða samband Bretlands við annað ríki og að tengslin milli landanna yrðu efld enn frekar. Fréttaskýrendur vilja þó meina að samskipti Browns og Bush séu ópersónulegri og af öðrum toga en á samskipti Bush og Tony Blairs, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Er meðal annars vísað til þess að búist er við því að David Milliband, utanríkisráðherra Bretlands og Condolezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna muni einnig sitja fund leiðtoganna í dag, þegar Bush og Blair kusu frekar að ræða saman í meira einrúmi. Hátt settur embættismaður í Breska utanríkisráðuneytinu sagði fyrr í mánuðinum að utanríkisstefna landanna verði ekki lengur eins samstíga og áður og víst er að Brown hefur hitt bæði leiðtoga Frakklands og Þýskalands, og aðalritara Sameinuðu Þjóðanna áður en hann fór í þessa heimsókn til Bandaríkjanna í dag. Brown er undir þrýstingi frá breskum kjósendum og þingmönnum um að hefja brottflutning breskra hermanna frá Írak fljótlega auk þess sem margir samlandar hans vilja sjá fangelsi Bandaríkjanna í Guantanamo flóa á Kúbu lagt niður Hins vegar er líklegt að Bandaríkjaforseti muni reyna að tryggja áframhaldandi veru breskra hermanna í Írak, í viðræðum sínum við Brown í dag. Eftir leiðtogafundinn í dag, heldur Brown til Washington. Þar mun hann eiga viðræður við fulltrúa beggja flokka á Bandaríkjaþingi og í Öldungadeildinni.
Mest lesið Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Mikill meirihluti féll fyrir íslenskri gervigreindarmynd Innlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Innlent Blöskrar viðbrögðin eftir tilnefningu fyrir mistök Innlent Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Innlent Jón Baldvin segir söguskýringu Dags af og frá: Samdi við Davíð um EES Innlent Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Innlent „Þessi umræða er rosalega niðurlægjandi“ Innlent Fjórir handteknir eftir alvarlega líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Sjá meira