Erlent

Stjórnvöld í Ísrael sleppa palestínskum föngum

Stjórnvöld í Ísrael byrjuðu í morgun að sleppa um 250 palestínskum föngum en flestir þeirra eru liðsmenn Fatah samtakanna. Engum Hamas liðum var þó sleppt. Ísraelsk stjórnvöld hafa undanfarið unnið að því að styrkja stöðu Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, og Fatah-hreyfingar hans og er þetta liður í þeim aðgerðum.

Abbas mun taka á móti föngunum í borginni Ramallah á Vesturbakkanum seinna í dag en þaðan halda þeir til síns heima.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×