Erlent

Fangelsi með vitund ráðamanna

Svissneski þingmaðurinn hefur verið iðinn við að rannsaka leynileg fangelsi CIA í Evrópu.
Svissneski þingmaðurinn hefur verið iðinn við að rannsaka leynileg fangelsi CIA í Evrópu. MYND/AP

Svissneski stjórnmálamaðurinn Dick Marty fullyrðir, í nýrri skýrslu sem hann vann fyrir Evrópuráðið, að bandaríska leyniþjónustan CIA hafi starfrækt leynileg fangelsi í Póllandi og Rúmeníu á árunum 2003 til 2005.

Hann segir fangelsin hafa verið starfrækt með fullri vitund ráðamanna.

Auk þess sakar hann bæði ítölsk og þýsk stjórnvöld um að torvelda honum rannsóknir sínar á leynifangelsum CIA í Evrópu og leynilegan flutning fanga milli landa.

Í skýrslu Martys er því meðal annars haldið fram að bæði Abu Zubaydah og Khalid Sheikh Muhammed, sem síðastliðið haust voru fluttir til Guantanamo á Kúbu, hafi verið hafðir í haldi í Póllandi og þar hafi Bandaríkjamenn yfirheyrt þá.

Pólsk og rúmensk stjórnvöld segja ekkert hæft í ásökunum Martys. Thomas Steg, talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar, hafnar sömuleiðis alfarið ásökunum um að stjórnin hafi gert Marty erfitt fyrir.

Skýrslan var lögð fram á Evrópuráðsþinginu í gær. Þingmenn fá skýrsluna nú til meðferðar og afgreiða endanlega gerð hennar með atkvæðagreiðslu í lok júní.

Í skýrslunni eru býsna nákvæmar lýsingar á slæmri meðferð sem fangarnir máttu þola. Upplýsingarnar eru sagðar fengnar frá föngum, bæði fyrrverandi og núverandi, mannréttindasamtökum og fólki sem hefur starfað í fangelsunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×