Erlent

Símsamband við Vatnajökul

Breski listamaðurinn Katie Paterson hefur gert listunnendum kleift að hlusta á Vatnajökul bráðna með einu símtali. Paterson varð hugfangin af íslensku jöklunum á ferð sinni um landið. Hún kom fyrir hljóð-nema í Jökulsárlóni og í síma má heyra skruðninga, brak og bresti þegar jökullinn molnar og skellur á yfirborði lónsins.

Símanúmerið hjá Vatnajökli er 00-44-7758-225698.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×