Erlent

Paris Hilton aftur í fangelsið

Paris Hilton grét þegar hún var sótt af lögreglu heim til sín og hætti ekki öll réttarhöldin.
Paris Hilton grét þegar hún var sótt af lögreglu heim til sín og hætti ekki öll réttarhöldin. MYND/AP

Paris Hilton kallaði á móður sína og hrópaði: „Þetta er ekki réttlátt!“ þegar hún var leidd grátandi út úr dómsal í Los Angeles í gærkvöldi. Dómarinn hafði skipað henni að snúa aftur í fangelsi til að afplána allan 45 daga dóminn sem hún hafði hlotið fyrir skilorðsbrot.

Hótelerfinginn, sem er 26 ára, hafði aðeins afplánað þrjá daga af 45 daga refsingu, sem hafði verið stytt niður í 23 daga. Henni var sleppt úr fangelsinu í fyrradag af heilsufarsástæðum.

Hilton hlaut þriggja ára skilorðsbundinn dóm í janúar fyrir ölvunarakstur. Hún var stöðvuð ljóslaus án ökuréttinda á 112 kílómetra hraða á klukkustund á götu með 56 kílómetra hámarki í febrúar. Í kjölfarið fékk hún 45 daga dóm fyrir skilorðsbrot.

Dómarinn hafði skipað Hilton að koma aftur fyrir rétt eftir að henni hafði verið sleppt. „Ég samþykkti aldrei að sakborningurinn fengi að fara úr fangelsinu til heimilis síns,“ sagði dómarinn.

Mannréttindasamtök reiddust þegar Hilton var sleppt úr fangelsi vegna ótilgreindra heilsufarsástæðna og sögðu þeim ríku hyglt fram yfir fátækari fanga.

Verjendur Hilton kröfðust þess að dómarinn leyfði þeim að útskýra fyrir honum eðli veikinda hennar, en hann sagðist aldrei hafa fengið útskýringar þess efnis frá fangelsinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×