Erlent

Græningjar ekki í stjórn

Forsætisráðherra Írlands hefur verið að ræða stjórnarmyndun með Græningjum.
Forsætisráðherra Írlands hefur verið að ræða stjórnarmyndun með Græningjum. MYND/AP

Í gær slitnaði upp úr sex daga stjórnarmyndunarviðræðum á Írlandi, þar sem stjórnarflokkur Bertie Aherns forsætisráðherra hafði reynt að mynda stjórn með Græningjum.

Ahern á því fáa úrkosti við stjórnarmyndun, en hægri stjórn hans missti meiri hluta í þingkosningum í síðasta mánuði eftir að hafa verið við völd í tíu ár.

Fulltrúar Græningja sögðu áherslur flokkanna of ólíkar til að samningar hafi tekist.

Á fimmtudag í næstu viku kemur þingið saman og kýs nýjan forsætisráðherra.


Tengdar fréttir

Fellibylur veldur skaða í Óman

Tugþúsundir Ómana flúðu hafnarborgina Sohar í fyrradag þegar fellibylurinn Gonu nálgaðist Hormuz-sund, helstu flutningsæð olíu frá Mið-Austurlöndum. Styrkur Gonu fer minnkandi, en 28 hafa farist af völdum hans, þar af þrír í Íran.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×