Erlent

Gátu ekki leyst öll vandamál heimsins

Þúsundir mótmælenda komu sér fyrir á vegunum til og frá Heiligendamm og margir þeirra sváfu þar í fyrrinótt.
Þúsundir mótmælenda komu sér fyrir á vegunum til og frá Heiligendamm og margir þeirra sváfu þar í fyrrinótt. MYND/AP

Heiligendamm, AP Þriggja daga leiðtogafundi G8-ríkjanna í Heiligendamm í Þýskalandi lauk í gær. Leiðtogarnir átta lofuðu að veita 60 milljörðum dala í baráttu gegn alnæmi og öðrum sjúkdómum í Afríku, auk þess sem þeir ákváðu að þrýsta enn frekar á Írana um að hætta við kjarnorkuáform sín. Ekkert samkomulag tókst hins vegar um framtíð Kosovo-héraðs.

„Auðvitað tókst okkur ekki á tveimur fundum að leysa öll vandamál heimsins,“ sagði Angela Merkel Þýskalandskanslari á blaðamannafundi í gær. „En okkur hefur miðað í áttina,“ bætti hún við.

George W. Bush Bandaríkjaforseti fékk heiftarlega magakveisu og þurfti að halda sig inni á hótelherbergi í gærmorgun meðan vinnufundur var haldinn, en honum tókst þó að eiga fund í einrúmi með Nicolas Sarkozy, nýkjörnum forseta Frakklands.

Talsmenn mótmælenda hrósuðu sigri eftir að hafa haldið vegum til og frá bænum Heiligendamm meira og minna lokuðum þá þrjá daga sem leiðtogafundurinn hefur staðið yfir.

Þýska lögreglan sagðist á hinn bóginn einnig hafa náð sínum markmiðum, sem voru þau að halda ofbeldi í skefjum. Lögreglan tók þann pól í hæðina að leyfa mótmælendum að vera óáreittir, jafnvel þótt þeir væru á svæðum þar sem mótmæli áttu að vera bönnuð, svo framarlega sem þeir kæmu friðsamlega fram. Um leið og vart var við ofbeldi greip lögreglan hins vegar inn í og tók harkalega á fólki.

Meðal helstu tíðinda af fundinum í Heiligendamm var tillaga Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta að lausn á deilunni um fyrirhugað eldflaugavarnakerfi Bandaríkjanna. Pútín vill alls ekki að Bandaríkjamenn setji eldflaugavarnakerfið upp í Evrópuríkjum, en á fimmtudaginn sagðist hann geta fallist á áformin ef kerfið yrði staðsett í Aserbædjan.

Í gær bætti hann svo um betur og sagðist ekkert hafa á móti því að það verði sett upp í löndunum suðvestantil í Asíu.

„Það væri hægt að staðsetja þær í suðrinu, í ríkjum vinveittum Bandaríkjunum eins og til dæmis Tyrklandi, eða jafnvel í Írak eða á sjávarpöllum,“ sagði Pútín á blaðamannafundi í Heiligendamm í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×