Saka sambandssinna um svik 19. október 2007 02:00 Brestir í samstjórninni Stormont-kastali, aðsetur norður-írska þingsins. nordicphotos/AFP
Norður-Írland, AP Samskipti sambandssinnaðra mótmælenda og lýðveldissinnaðra kaþólikka á Norður-Írlandi versnuðu í vikunni, er fulltrúar sambandssinna á norður-írska þinginu komu í veg fyrir að samþykkt yrðu lög sem höfðu að markmiði að auka veg gelísku á Norður-Írlandi. Lýðveldissinnar eru mjög áfram um að hið forna mál Íra hljómi meira á eynni grænu, þar sem enska er annars allsráðandi. Í írska lýðveldinu nýtur gelískan stjórnarskrárverndar og í Skotlandi eru í gildi bresk lög sem stuðla að viðgangi hennar. En Edwin Poots, ráðherra menningarmála í norður-írsku heimastjórninni, sem sjálfur er mótmælandi, tjáði þinginu í Belfast að hin áformuðu lög um viðgang írskrar tungu yrðu of dýr í framkvæmd og myndu að auki stuðla að auknum klofningi trúarhópa. Í sameiginlegum friðartillögum forsætisráðherra Írlands og Bretlands frá því í fyrra, sem leiddu til endurreisnar samstjórnar hinna áður stríðandi fylkinga á Norður-Írlandi, var kveðið á um að stutt skyldi við viðgang gelískunnar. Enda sökuðu leiðtogar kaþólikka sambandssinna um að ganga á bak því sem samið hefði verið um og hótuðu að leita íhlutunar af hálfu bresku stjórnarinnar, sem heldur eftir sem áður æðsta stjórnvaldi á Norður-Írlandi. Poots sagði það hlálegt ef lýðveldissinnar sem lengi hefðu barist gegn yfirráðum Breta skyldu nú leita á þeirra náðir vegna þessa máls. - aa
Mest lesið Segist saklaus Innlent Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Innlent Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Innlent Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Innlent Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Innlent Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Erlent Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Innlent Mojtaba Khamenei særður en óhultur Erlent Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Innlent Rúv er óháð hagsmunum stjórnmála og einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Sjá meira