Erlent

Þýsk mæðgin í gíslingu í Írak

Fram kemur að Krause sé starfsmaður austurríska sendiráðsins í Bagdad og sonur hennar starfsmaður íraska utanríkisráðuneytisins.
Fram kemur að Krause sé starfsmaður austurríska sendiráðsins í Bagdad og sonur hennar starfsmaður íraska utanríkisráðuneytisins. MYND/AFP

Hópur uppreisnarmanna í Írak, sem hefur þýsk mæðgin í haldi, hefur gefið þýskum stjórnvöldum tíu daga viðbótarfrest til að kalla hermenn sína heim frá Afganistan ella verði gíslarnir drepnir. Hópurinn birti á þriðjudag myndband af þeim grátbiðja um hjálp.

Hannelore Marianne Krause, 61 árs, brast ítrekað í grát á myndbandinu og bað fjölskyldu sína að þrýsta á stjórnvöld. Fullorðinn sonur hennar, Sinan, sagði ekkert en sat og grét.

Uppreisnarmennirnir höfðu áður gefið frest til 20. mars, sem rann út án þess að orðið yrði við kröfum þeirra. Þýsk stjórnvöld sögðust vera að vinna í málinu, án þess að gefa neitt nánar upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×