Erlent

Fundar í óþökk Hvíta hússins

Demókratar á þingi eru í auknum mæli að beita sér í stefnumótun í Mið-Austurlöndum.
Demókratar á þingi eru í auknum mæli að beita sér í stefnumótun í Mið-Austurlöndum. MYND/AP

Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, átti fund með Bashar Assad, forseta Sýrlands, í gær í óþökk Hvíta hússins.

Var fundinum ætlað að þrýsta á stjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta að opna beinar viðræður við Sýrland, sem hún hefur ekki viljað gera hingað til.

Hvíta húsið sakar Sýrlendinga um að kynda undir ofbeldi í Írak með því að leyfa uppreisnarmönnum súnnía að hefja aðgerðir frá Sýrlandi.

Demókratar á þingi segja tilraunir Bandaríkjanna til að þvinga fram breytta stefnu Sýrlands með einangrun hafa mistekist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×