Erlent

Paris Hilton í steininum

Paris Hilton, einn af erfingjum Hilton-hótelkeðjunnar, hefur hafið afplánun fangelsisrefsingar sem hún hlaut á dögunum fyrir að hafa rofið skilorð vegna ölvunaraksturs.

Hilton, sem helst er fræg fyrir að vera fræg, gaf sig fram við fangelsisyfirvöld í Los Angeles í gær skömmu eftir að hún hafði sótt verðlaunahátíð í borginni og mun hún dúsa næstu þrjár vikurnar á bak við lás og slá. Hilton blandar þó ekki geði við aðra fanga því hún dvelur í sérstakri álmu fyrir frægt fólk og opinbera starfsmenn eins og lögreglumenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×