Taylor lét ekki sjá sig 4. júní 2007 07:07 Charles Taylor. MYND/AP
Charles Taylor fyrrverandi forseti í Líberíu mætti ekki fyrir dómara í morgun þegar réttarhöld yfir honum hófust hjá stríðsglæpadómstól í Haag. Taylor er ákærður fyrir að styðja við bakið á uppreisnarmönnum í Sierra Leone og er hann fyrsti afríski leiðtoginn sem ákærður er fyrir stríðsglæpi. Málið verður tekið fyrir sérstökum stríðsglæpadómstól í Haag og eru ákæruliðirnir ellefu talsins, þar á meðal ákæra um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni. Taylor komst til valda í Líberíu árið 1989 og er sagður hafa stutt við vopnabróður sinn, Foday Sankoh, og uppreisnarsveitir hans í Síerrra Leóne. Þær sveitir urðu alræmdar fyrir að höggva útlimi af borgurum í Síerra Leóne í ellefu ára baráttu sinni fyrir því að ná völdum í landinu. Taylor er sagður hafa látið uppreisnarsveitunum í té bæði peninga og vopn í þeirri von að fá hluta af demantaauðæfum Síerra Leóne. Honum varð ekki kápan úr því klæðinu og eftir að uppreisninni í Síerra Leóne hafði verið hrundið var gefin út ákæra á hendur leiðtogum uppreisnarmanna og Taylor. Búist er við að réttarhöldin yfir Taylor standi í að minnsta kosti eitt og hálft ár. Þau áttu upphaflega að fara fram í Síerra Leóne en sökum viðkvæms stjórnmálaástands voru þau flutt til Haag þar sem réttað hefur verið yfir ýmsum öðrum stríðsglæpamönnum. Charles Taylor er fyrsti leiðtogi Afríkuríkis sem dreginn er fyrir stríðsglæpadómstól.
Mest lesið Páll Winkel varð fyrir valinu Innlent Slitin drifkeðja bifhjóls olli banaslysi á Miklubraut Innlent „Fyrir löngu búið að fara yfir þolmörk starfsfólks Ölduselsskóla“ Innlent Sakfelling hjúkrunarfræðingsins sé sorgleg Innlent Skóli blásinn af og foreldrar eitt stórt spurningarmerki Innlent „Heiða hætt? Nei, bara veik heima“ Innlent Kjartan og Marta út, Björn í tíunda og Friðjón í því ellefta Innlent Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Innlent Flestir óánægðir með störf ríkisstjórnarinnar Innlent Björn kemst ekki til Melaniu Innlent Fleiri fréttir Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Sjá meira