Enski boltinn

Levante hafnar Luque vegna of hárra launakrafna

Aron Örn Þórarinsson skrifar
Albert Luque fer fram á of há laun.
Albert Luque fer fram á of há laun. NordicPhotos/GettyImages

Spænska liðið Levante hefur slitið á allar samningsviðræður við framherjann Albert Luque hjá Newcastle vegna of hárra launakrafna leikmannsins. Luque dreymir um að komast frá Englandi áður en leikmannaglugginn lokar til að enda martröð sína hjá Newcastle, en framherjinn hefur ekki staðið undir væntingum síðan hann var keyptur til Newcastle.

Umboðsmaður og faðir Luque er sagður hafa krafist 5,4 milljóna í laun fyrir fjögurra ára samning, en Levante segir það ómögulegt að borga honum svona há laun.

Greinilegt er að Luque þarf að lækka launakröfur sínar ef hann vill komast frá Englandi því að Real Betis og Espanyol hafa þegar hafnað tækifæri á að semja við leikmanninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×