Erlent

Mannskæðasta árásin frá 2001

Rútan var á ferð um fjölmennt svæði í Kabúl þegar sprengingin varð.
Rútan var á ferð um fjölmennt svæði í Kabúl þegar sprengingin varð. fréttablaðið/ap

Að minnsta kosti 35 létust og 52 særðust þegar rúta með lögreglukennurum var sprengd í loft upp í Kabúl, höfuðborg Afganistan, í gær í mannskæðustu árásinni frá innrás Bandaríkjahers og bandamanna í Afganistan árið 2001. Talibanar lýstu ábyrgð á árásinni á hendur sér.



Forseti Afganistan, Hamidd Karzai, fordæmdi árásina sem hann sagði tilraun „óvina Afganistan“ til að stöðva þróun öryggissveita landsins. Sveitirnar spila lykilhlutverk í áætlun Bandaríkjanna og Atlantshafsbandalagsins um að stjórnvöld í Afganistan taki yfir stjórn öryggismála í landinu.
-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×