Erlent

Sleppir 250 Palestínumönnum

Ísraelska ríkisstjórnin ákvað í gær að sleppa 250 palestínskum föngum sem þeir hafa í haldi. Ákvörðunin er nýjasta útspil ríkisstjórnarinnar til að styrkja stöðu Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, í þeim deilum sem hann hefur átt í við Hamas-samtökin.

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísrael, ákvað að sleppa föngunum fyrir tveimur vikum þegar hann fundaði með Abbas. Ekki hefur veri ákveðið hvaða föngum verður sleppt en um 10 þúsund Palestínumenn eru í haldi Ísraelsmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×