Erlent

1.200 bílar fastir í drullunni

Þeir gestir sem mættu á eigin bifreið á Hróarskelduhátíðina í Danmörku þurftu flestir að finna aðrar leiðir til að komast til síns heima, en stór hluti þeirra bifreiða sem lagt hafði verið á aðalbílastæði tónleikasvæðisins sat fastur í drullusvaðinu sem myndast hefur í rigningunum síðustu daga. Í sumum tilvikum náði aurinn upp að gluggum bifreiðanna.

Um kvöldmatarleytið í gærkvöld hafði verið búið að losa 500 af þeim rúmlega 1.200 bifreiðum sem fastar voru. Búist var við því að það yrði ekki fyrr en eftir miðnætti sem búið væri að draga alla bílana úr drullunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×