Erlent

Skattar á fyrirtæki lækkaðir

Angela Merkel
Angela Merkel

Efri deild þýska þingsins hefur samþykkt lagafrumvarp Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, sem felur í sér að skattar á fyrirtæki verða lækkaðir úr 38,5 prósentum niður í tæp 30. Frumvarpið verður að lögum 1. janúar 2008.

Markmiðin með lagafrumvarpinu eru meðal annars að auka samkeppnishæfi þýskra fyrirtækja, tryggja að þau greiði skatta til þýska ríkisins og gera landið að vænlegri kosti fyrir fjárfesta.

Þýska fjármálaráðuneytið telur að með samþykkt frumvarpsins muni skattbyrði fyrirtækja í landinu minnka um tæpa 418 milljarða íslenskra króna á ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×