Erlent

Ætlar ekki að náða fangana

Nicholas Sarkozy
Nicholas Sarkozy

Nicholas Sarkozy, forseti Frakklands, ætlar ekki að náða þúsundir franskra fanga á Bastilludaginn, þann 14. júlí, eins og Jacques Chirac og aðrir fyrirrennarar hans á forsetastóli gerðu.

Forsetar Frakklands hafa gert þetta í gegnum tíðina vegna þess að frönsk fangelsi eru ofsetin. 61 þúsund manns eru í fangelsum í Frakklandi en þau voru byggð til að hýsa 50 þúsund.

Sarkozy telur að slíkar fjölda­­náðanir séu ekki rétta aðferðin til að stjórna fangelsum landsins. Forsetinn sagði hins vegar að hann myndi náða einstaka fanga í sérstökum tilfellum og af mannúðarástæðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×