Villidýrið gekk laust á White Hart Lane 24. janúar 2007 22:10 Baptista sá um markaskorun beggja vegna vallarins í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Brasilíumaðurinn Julio Baptista setti á svið sýningu í kvöld þegar Tottenham og Arsenal skildu jöfn í fyrri undanúrslitaleik sínum í enska deildarbikarnum. Dimitar Berbatov kom Tottenham yfir í leiknum, en það var Baptista sem sá um tilþrifin eftir það - ekki ósvipað og gegn Liverpool í 8-liða úrslitunum á dögunum. Heimamenn í Tottenham höfðu ekki unnið sigur á erkifjendum sínum í sjö ár en liðið byrjaði mjög vel gegn óstyrkum varnarmönnum Arsenal. Dimitar Berbatov kom Tottenham yfir á 12. mínútu eftir varnarmistök gestanna og aðeins 9 mínútum síðar skoraði téður Baptista sjálfsmark og útlitið því orðið mjög dökkt fyrir Arsenal og herbragð Arsene Wenger að tefla fram unglingaliði sínu leit skyndilega út fyrir að vera slæm hugmynd. Baptista fékk gott tækifæri til að minnka muninn í fyrri hálfleik en misnotaði færið og því fóru leikmenn Arsenal þungir á brún til búningsherbergja. Það átti eftir að breytast í þeim síðari þegar gestirnir tóku öll völd og Baptista jafnaði leikinn verðskuldað með mörkum á 64. og 77. mínútu. Þeir Cesc Fabregas og Theo Walcott fengu svo góð tækifæri til að gera út um leikinn í lokin en höfðu ekki heppnina með sér. Bæði lið urðu fyrir áfalli þegar Dimitar Berbatov hjá Tottenham og Alexander Hleb þurftu báðir að fara meiddir af velli, en segja má að niðurstaðan í kvöld hafi verið nokkuð sanngjörn og ljóst að Tottenham bíður gríðarlega erfitt verkefni í síðari leiknum á útivelli.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira