Erlent

Dýrka Filippus prins sem guð

Filippus prins Er dýrkaður sem guð af frumbyggjum á eyju í Suður-Kyrrahafi. Engum sögum fer af dýrkun á Elísabetu II Bretadrottningu.
Filippus prins Er dýrkaður sem guð af frumbyggjum á eyju í Suður-Kyrrahafi. Engum sögum fer af dýrkun á Elísabetu II Bretadrottningu.

Filippus prins, eiginmaður Elísabetar Englandsdrottningar, er dýrkaður sem guð af frumbyggjaættflokki á eyju í Vanúatú-eyjaklasanum í Suður-Kyrrahafi.

Að því er greint er frá á fréttavef breska útvarpsins, BBC, hófst þessi dýrkun á Filippusi upp úr árinu 1960, en á þeim tíma var Vanúatú enn bresk-frönsk nýlenda og bar nafnið New Hebrides (Nýju Suðureyjar). Í aldaraðir höfðu íbúar á eynni Tanna trúað goðsögn um að sonur fjallsanda myndi einn góðan veðurdag berast yfir hafið í leit að öflugri konu til að kvænast. Samkvæmt goðsögninni yrði þessi guðumlíka vera ljós á hörund, ólíkt heimamönnum.

Einhvern veginn fór svo að þessi goðsögn var heimfærð upp á Filippus prins – sem vissulega hafði kvænst ríkri og voldugri konu. Þessi trú hlaut byr undir báða vængi þegar drottningin og Filippus prins komu í opinbera heimsókn til eyjaklasans árið 1974.

„Hann er guð, ekki maður,“ hefur fréttaritari BBC eftir Jack Naiva, þorpshöfðingja á Tanna. 86 ára afmæli prinsins var fagnað með mikilli veislu í þorpinu á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×