Erlent

Nefnd semji ljóð við þjóðsönginn

Leiðtogi stjórnarandstöðuflokks á Spáni hyggst flytja frumvarp þess efnis að skipuð verði nefnd sem hefði það hlutverk að semja texta við þjóðsöng Spánverja.

Þjóðsöngurinn var tekinn upp síðla á átjándu öld. Honum hefur aldrei fylgt texti, þrátt fyrir fjölda tilrauna til að semja einn slíkan.

Mariano Rajoy, flutningsmaður frumvarpsins, segir að þingnefndin ætti að geta samið laglegt vers við þjóðsönginn á tveimur til þremur vikum. Margir hafa þó líst efasemdum um að nefnd geti valdið svo listrænu verki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×