Erlent

Ríkisstjórn Verhofstadts fallin

Yves Leterme. Leiðtogi kristilegra demókrata í flæmska hluta Belgíu fagnar í Brussel í gærkvöld.
Yves Leterme. Leiðtogi kristilegra demókrata í flæmska hluta Belgíu fagnar í Brussel í gærkvöld. MYND/AP

Ríkisstjórnarflokkar frjálslyndra og sósíalista biðu afhroð í kosningum til belgíska sambandsþingsins í gær, samkvæmt fyrstu tölum eftir að kjörstöðum var lokað.

Kristilegir demókratar, burðarflokkur stjórnarandstöðunnar síðastliðin átta ár, unnu mikinn kosningasigur og formaður flæmska hluta flokksins, Yves Leterme, tjáði flokksmönnum sínum í gærkvöld: „Það er kominn tími til breytinga. Þjóðin vill nýja stefnu.“ Leterme er líklegastur til að verða forsætisráðherra í ríkisstjórn sem kristilegir færu fyrir.

Þegar hátt í helmingur atkvæða hafði verið talinn voru kristilegir með 32,2 prósent atkvæða í flæmskumælandi hluta Belgíu, sex og hálfu prósentustigi meira en í síðustu kosningum, en Frjálslyndir, flokkur Guy Verhofstadts forsætisráðherra, aðeins 18,7 prósent, sex prósentum minna en síðast. Sósíalistar tapa einnig stórt í báðum landshlutum.

Hinn útlendingafjandsamlegi Vlaams Blok fékk samkvæmt sömu tölum 19,1 prósent atkvæða og er þar með annar stærsti flokkurinn í flæmska hluta Belgíu, þar sem sex milljónir af alls 10,5 milljónum Belga búa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×