Brynvagnar stefna að landamærunum 23. október 2007 03:00 „Píslarvottar deyja aldrei. Föðurlandið er óskiptanlegt,“ stendur á ennisborða þessarar konu sem hrópar slagorð á mótmælafundi þjóðernissinna í Istanbúl í gær í tilefni af árásum síðustu daga á tyrkneska hermenn.fréttablaðið/ap
Tugir tyrkneskra brynvagna stefndu í gær að landamærunum að Írak. Á fjölmennum mótmælafundum í borgum landsins var þess krafist að tekið væri af hörku á uppreisnarmönnum Kúrda í kjölfar þess að í fyrradag féllu tólf hermenn í fyrirsát. Árásin hefur aukið enn líkurnar á að Tyrkir sendi herlið inn fyrir landamæri Íraks til að elta uppi skæruliða þar sem þeir annars eru að mestu í skjóli fyrir refsivendi tyrkneska hersins. Bandaríkjastjórn beitir sér nú af afli til að telja Tyrkja ofan af því að ráðast inn í Írak. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hringdi í tyrkneska forsætisráðherrann Recep Tayyip Erdogan og leiðtoga heimastjórnar Kúrdahéraðanna í Norður-Írak, Massoud Barzani, á sunnudag til að knýja á um að varkárni yrði höfð að leiðarljósi í baráttunni gegn hinni bönnuðu hreyfingu aðskilnaðarsinnaðra Kúrda í Tyrklandi, hinum svonefnda Verkamannaflokki Kúrdistans, PKK. Hann hefur bækistöðvar handan landamæranna á yfirráðasvæði íraskra Kúrda. „Við teljum ekki að einhliða hernaðaraðgerðir yfir landamæri séu besta leiðin til að fást við þetta vandamál,“ sagði Sean McCormack, talsmaður utanríkisráðuneytisins í Washington. Ali Babacan, utanríkisráðherra Tyrklands, sagði í heimsókn í Kúvæt í gær að Tyrklandsstjórn myndi leita pólitískrar lausnar á vandanum áður en hún brygði á það ráð að senda her inn í Írak á eftir skæruliðum. „En þegar allt kemur til alls, náist engin niðurstaða, höfum við aðrar aðferðir sem við kunnum að neyðast til að beita,“ tjáði Babacan fréttamönnum. - aa
Mest lesið „Það er hetja á Múlaborg“ Innlent Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Innlent Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Innlent Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Erlent Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið Innlent Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Innlent „Réttu spilin og réttu vopnin“ Innlent Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Innlent Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Erlent Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Innlent Fleiri fréttir Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Ákærður fyrir fjórar nauðganir Gífurlegur munur á pyngjum flokkanna vestanhafs Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Sjá meira