Aukin pólitísk völd Hu eftir flokksþing 23. október 2007 03:00 Forysta Kommúnistaflokksins reis úr sætum þegar alþjóðasöngur verkalýðsins var sunginn á lokadegi flokksþingsins í gær. nordicphotos/afp
kína, ap Forseti Kína, Hu Jintao, hefur seinna fimm ára kjörtímabil sitt með aukin pólitísk völd að loknu flokksþingi Kommúnistaflokksins í Kína. Hann hefur nú frjálsari hendur til að fást við vaxandi spennu vegna launamunar og til að auka fjárframlög til vanræktrar félagsþjónustu. Níu manna framkvæmdastjórn Kommúnistaflokksins var skipuð á flokksþinginu og munu fjórir nýir menn taka sæti í stjórninni. Þykir sumum það áhyggjuefni að tveir mögulegir eftirmenn Hu í embætti forseta, Li Keqiang og Xi Jinping, voru skipaðir í framkvæmdastjórnina þar sem það geti leitt til innri ágreinings í flokknum. Það hefur ítrekað gerst í sögu flokksins þrátt fyrir þá miklu áherslu sem þar er lögð á einingu. Xi, flokksleiðtogi frá Sjanghæ og sonur virts byltingarleiðtoga, hefur markað sér stöðu sem valkostur fyrir þá valdamenn í Kommúnistaflokknum sem vilja ekki gefa Hu of mikil völd. Li, flokksleiðtogi úr norðausturhéraðinu Liaoning, er skjólstæðingur Hu og þykir forsetinn hafa sýnt stuðning sinn við hann. Xi fékk þó valdameiri stöðu innan framkvæmdastjórnarinnar en Li, sem þykir gefa honum meiri möguleika á að taka við af Hu eftir að seinna kjörtímabili hans lýkur eftir fimm ár. - sdg
Mest lesið RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Erlent Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Erlent Fullir í flugi Innlent Í gæsluvarðhaldi fram í september Innlent „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Erlent Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Innlent Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Erlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Innlent Fleiri fréttir Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Sjá meira