Erlent

Rússar spá í skilaboð Pútín

Ber að ofan í Síberíu. Vladimír Pútín í göngutúr meðfram ánni Khemchik í Tuva-héraði.
Ber að ofan í Síberíu. Vladimír Pútín í göngutúr meðfram ánni Khemchik í Tuva-héraði. MYND/AP

Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur jafnan verið umtalaður leiðtogi, bæði innan Rússlands og utan. Fáir áttu þó von á þeirri holskeflu sem birst hefur af slúðri og vangaveltum eftir að myndir af honum birtust í síðustu viku, berum að ofan og stæltum.

Myndirnar voru teknar í fjallaferð hans með Albert Mónakóprins í Síberíu, og voru birtar með áberandi hætti á vefsíðu forsetans sjálfs og síðan á forsíðu dagblaðs undir fyrirsögninni: „Vertu eins og Pútín“.

Rússneskir fjölmiðlar eru enn, viku síðar, að velta sér upp úr málinu og meðal annars er mikið spáð í hvaða pólitísku skilaboðum forsetinn hafi viljað koma á framfæri.

Í spjallþætti einum í útvarpi hafði þáttastýran orð á því, hafi Pútín ætlað sér að höfða betur til kjósenda þá væri þar með gefið í skyn að hann ætli að sitja lengur en tvö kjörtímabil. Þegar þáttastýran spurði svo hvort athæfið væri viðeigandi rigndi yfir hana tölvupóstum frá kvenfólki sem átti vart orð yfir aðdáun sinni á stæltum líkama forsetans.

Samkynhneigðir Rússar hafa velt því fyrir sér hvort Pútín vilji með þessu hvetja til umburðarlyndis gagnvart hommum og lesbíum. Á Netinu var dreift skopmynd af þeim Pútín og Albert þar sem ævintýrum þeirra á fjöllum var líkt við ástarsögu samkynhneigðu kúrekanna í bíómyndinni Brokeback Mountain.

Pútín er 54 ára gamall, kvæntur og tveggja dætra faðir. Hann hefur löngum lagt rækt við karlmennskuímynd sína og er meðal annars þekktur skíðamaður og með svarta beltið í júdó. Hann hefur komið fram í sjónvarpi við ýmis tækifæri, og meðal annars sést aka flutningabifreið, stjórna járnbrautarlest, sigla kafbát og við stýrið á orustuþotu.

Öfugt við forvera sinn, Boris Jeltsín, sem þótti á stundum trúðslegur drykkjumaður, þá hefur Pútín gefið þá mynd af sé að hann sé alvarlegur í bragði, kraftmikill, allsgáður og hnyttinn í tilsvörum.

„Hann er svalur. Það hefur verið ímyndin alla forsetatíðina, svalur,“ sagði Sergei Markov, stjórnmálaskýrandi í Moskvu.

Stanislav Belkovskí, annar stjórnmálaskýrandi í Moskvu, segir að fjallaferðin með Albert prins hafi ekki átt að sýna fram á neitt annað en að Pútín kunni að slaka á og sé byrjaður að búa sig undir brotthvarf úr stjórnmálum.

Jevgení Volk, þriðji stjórnmálaskýrandinn, segir hins vegar að myndbirtingarnar af Pútín berum að ofan geri varla annað en að ýta undir þá skoðun, sem nýtur vaxandi fylgis meðal stjórnmálaelítunnar í Moskvu, að óþarfi sé að taka Pútín alvarlega lengur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×