Mótsagnir í málflutningi 23. ágúst 2007 02:30
Steven Jordan, undirofursti í Bandaríkjaher, hefur lent í mótsögnum í málsvörn sinni fyrir bandarískum herdómstól, þar sem fjallað er um hlut hans í misþyrmingum á föngum í hinu illræmda Abu Ghraib-fangelsi í Írak. Jordan, sem er 51 árs, var yfirmaður nýstofnaðrar yfirheyrsludeildar fangelsisins haustið 2003, nokkrum mánuðum eftir að stríðið í Írak hófst. Hann er sakaður um að hafa ekki þjálfað undirmenn sína nægilega vel, ekki kynnt þeim reglur hersins um yfirheyrsluaðferðir og þar með mótað það andrúmsloft meðal fangavarðanna að heimilt væri að misþyrma föngunum með ýmsum hætti. Einnig er hann sakaður um að hafa án heimildar leyft notkun hunda við yfirheyrslur. Verði hann dæmdur sekur á hann yfir höfði sér fangelsisdóm upp á átta og hálft ár. Lögfræðingar Jordans segja hann tvisvar hafa tilkynnt um brot undirmanna sinna, en svo þegar hann var spurður hvers vegna sumir fangar hafi verið hafðir naktir þá svaraði hann því til að það væri liður í yfirheyrsluaðferðum í fangelsinu. Jordan er eini yfirmaðurinn sem hefur verið ákærður vegna misþyrminganna, og síðastur hinna ákærðu til að fara fyrir dóm. Ellefu hermenn hafa þegar verið dæmdir og hlaut einn þeirra, Charles Granier, tíu ára fangelsisdóm í janúar árið 2005.
Mest lesið Leita leiða til að kveða ranglega útgefnar sektir í kútinn Fréttir „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Innlent „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ Erlent Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Innlent Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Innlent Uppsagnir sjómanna í Grindavík: „Hvenær er nóg, nóg?“ Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent ESB leggur til tolla á Ísland: „Þetta er bara tillaga sem er á borðinu“ Innlent Hneig niður vegna flogakasts Innlent Fleiri fréttir „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ „Tími til kominn að ljúka stríðinu á Gasa“ Lýsa yfir herlögum í Taílandi Ísraelsþing ályktar um innlimun Vesturbakkans Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Norskur maður ákærður fyrir njósnir í þágu Rússa og Írana Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð Setjast enn og aftur við samningaborðið en væntingar eru litlar Sjá meira