Enski boltinn

Spilar í dag brákaður á tá

Steven Gerrard ætlar alls ekki að missa af slagnum við Chelsea.
Steven Gerrard ætlar alls ekki að missa af slagnum við Chelsea. MYND/Getty

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, lætur ekki brákaða tá koma í veg fyrir að hann spil stórleikinn gegn Chelsea í dag. Gerrard meiddist í 1-0 sigri á franska liðinu Toulouse í forkeppni meistaradeildarinnar á miðvikudaginn.

Meiðslin munu þó væntanlega kosta hann vináttulandsleikinn við Þýskaland á Wembley á miðvikudaginn. „Hann verður klár í slaginn en eina vandamálið er að hann gæti þurft góða hvíld á eftir," sagði Rafael Benitez, stjóri Liverpool.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×