Erlent

Erfiður farþegi límdur fastur

Áhöfn flugvélar frá bandaríska flugfélaginu Frontier Airlines notaði heila rúllu af einangrunarlímbandi til að festa órólegan farþega við sæti sitt í liðinni viku.



Kona, Tamera Jo Freeman að nafni, tók að hegða sér óviðurkvæmilega í miðju flugi og misþyrmdi að sögn vitna eigin börnum. Flugþjónn greip þá límbandsrúllu og kláraði hana utan um konuna til að hafa á henni hemil. Talsmaður flugfélagsins segir aðferðina viðurkennda til að hefta erfiða farþega, þótt það sé sjaldgæft. „Þetta gerist af og til,“ segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×