Erlent

Hamstraði dýr og þreif aldrei

Borgaryfirvöld í borginni Ben Lomond í Kaliforníu fundu 83 ketti, þrjá hunda og tvær eðlur á heimili dýrahamstrara á dögunum. Kvartað hafði verið yfir illri meðferð dýra á heimilinu. Talið er að dýrin 88 séu mesti fjöldi gæludýra sem fundist hafa í einni íbúð.



„Ímyndið ykkur 83 ketti sem búið hafa í einni íbúð í tvö ár án kattasandskassa. Þá fáið þið einhverja hugmynd um aðstæðurnar,“ sagði sá sem fór fyrir yfirvöldum í málinu við Mercury News- fréttastofuna. Sums staðar voru yfir eins metra háir skítahaugar á gólfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×