Erlent

Ætla að vinna náið saman

Höfðu ýmislegt að segja hvor öðrum.
Höfðu ýmislegt að segja hvor öðrum. fréttablaðið/AP

Þeir Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, og Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti stefna að náinni samvinnu á næstu árum. Þeir ætla meðal annars að stilla saman strengi sína gegn alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi. Sömuleiðis ætla þeir að vinna saman að lausn á hörmungum íbúanna í hinu stríðshrjáða Darfúrhéraði í Súdan.



„Við Gordon Brown höfum báðir vilja til þess að vinna saman að öllum þeim málefnum sem við ræddum um, styrkja tengsl Bretlands og Frakklands og taka sameiginlega frumkvæði í málum,“ sagði Sarkozy að loknum fundi þeirra í París í gær.



Sarkozy segir að þeir ræðist við í síma næstum vikulega, og þeir hafa ákveðið að hittast reglulega til þess að bera saman bækur sínar, meðal annars áður en leiðtogafundir Evrópusambandsins eru haldnir.

Á fundi sínum í gær beindu þeir athygli sinni sérstaklega að Darfúrhéraði og hyggjast báðir ferðast þangað í þeirri von að geta hjálpað til við að koma á friði.



Báðir eru þeir Brown og Sarkozy nýteknir við embætti, hvor í sínu landi, en samskipti forvera þeirra, þeirra Tonys Blair og Chacques Chirac, einkenndust oft af misjafnlega djúpstæðum ágreiningi, meðal annars ágreiningi um Íraksstríðið og Evrópusambandið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×