Erlent

Hörð átök um moskuna

Stjórnarherinn í Pakistan réðst snemma í gærmorgun inn í rauðu moskuna í Íslamabad. Eftir harða bardaga við herskáa múslima náði herinn moskunni og sambyggðum kvennaskóla á sitt vald.



Abdul Rasheed Ghazi, næstæðsti klerkur moskunnar, féll í árásinni þar sem hann hafði hreiðrað um sig í kjallara kvennaskólans ásamt herskáum félögum sínum. Bardagarnir kostuðu nærri 60 manns lífið, þar á meðal átta stjórnarhermenn.



Eldri bróðir Ghazis, Maulana Abdul Aziz æðstiklerkur, var handtekinn á miðvikudaginn í síðustu viku þegar hann reyndi að komast út úr moskunni dulbúinn sem kvenmaður.



Stjórnvöld segjast ekki hafa átt annars úrkosta en að ráðast inn í moskuna eftir að ljóst þótti að samningaviðræður myndu engan árangur bera.



Umsátur hersins um moskuna hófst á þriðjudaginn í síðustu viku í beinu framhaldi af átökum fyrir utan moskuna sem kostuðu að minnsta kosti níu manns lífið. Tugir kvenna og barna voru í moskunni meðan umsátrið stóð yfir og sögðu stjórnvöld þau vera gísla hinna róttæku múslima. Herinn hélt því fram að um það bil fimmtíu af þessum gíslum hafi verið bjargað á lífi í gær.



Rauða moskan er ein helsta moskan í Íslamabad, staðsett skammt frá helstu stjórnarbyggingum landsins í höfuðborginni. Undanfarna mánuði hafa ráðamenn moskunnar lent æ oftar upp á kant við stjórnvöld í Pakistan.



Ghazi þótti á yngri árum hófsamur múslimi, en hann varð mun róttækari eftir að faðir þeirra bræðra, sem á sínum tíma stofnaði rauðu moskuna, var myrtur árið 1998. Árið 2004 gaf Ghazi út trúarlega tilskipun, fatwa, um að ekki skuli lesa útfararbænir yfir pakistönskum hermönnum, sem féllu í bardögum við al-Kaída, hin alræmdu samtök Osama bin Laden.



Ráðamenn moskunnar hafa undanfarna mánuði lagt mikla áherslu á að múslimskum sharia-lögum verði framfylgt út í æsar í höfuðborginni, þvert ofan í vilja stjórnvalda. Moskan hefur í raun fylgt svipaðri stefnu og talibanastjórnin í Afganistan á sínum tíma, og hafa tveir kóranskólar verið starfræktir í tengslum við moskuna, annar fyrir karla en hinn fyrir konur.



Nemendur kóranskólanna hafa látið mjög til sín taka og meðal annars rænt bæði lögreglumönnum og konum sem þeir hafa sakað um að vera vændiskonur, auk þess hafa þeir varað verslunarfólk við að selja tónlist og kvikmyndir.



Stjórnvöld létu þó ekki til skarar skríða gegn aðgerðum þeirra fyrr en í síðustu viku eftir að námsmennirnir rændu sjö Kínverjum á nálastungustofu, sem námsmennirnir fullyrtu að væri vændishús.

Pervez Musharraf, forseti Pakistans, þykir taka nokkra áhættu með því að senda her sinn gegn hinum herskáu múslimum. Átökin gætu leitt af sér sterkari andstöðu gegn stjórn hans.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×