Erlent

Riftir samningi við Japan

Tívolíið í Kaupmannahöfn hefur ákveðið að rifta samningi við skemmtigarð í Japan, þar sem býsna nákvæm eftirlíking af dönsku frummyndinni hefur verið starfrækt í tíu ár.



Japanska tívolíið hefur greitt dönsku fyrirmyndinni 250 þúsund danskar krónur á hverju ári fyrir leyfi til þess að nota danska vörumerkið og Tívolínafnið.



Danir saka Japani um að hafa ekki sinnt verkefninu af nægum krafti. Aðsókn að japanska garðinum hefur dregist mjög saman. Öllum tillögum til úrbóta, sem borist hafa frá danska tívolíinu, hefur verið hafnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×