Erlent

Lögregla beitti táragasi á mótmælendur

Uppstillingin á fundi páfans og Bandaríkjaforseta í Vatíkaninu í gær vakti nokkra athygli. Höfðu einhverjir á orði að Bush hefði litið út eins og nemandi í yfirheyrslu hjá skólastjóra.
Uppstillingin á fundi páfans og Bandaríkjaforseta í Vatíkaninu í gær vakti nokkra athygli. Höfðu einhverjir á orði að Bush hefði litið út eins og nemandi í yfirheyrslu hjá skólastjóra. MYND/AFP

Ítalska lögreglan neyddist til að beita táragasi á tugþúsundir mótmælenda sem saman voru komnir í Róm í gær til að andmæla George W. Bush Bandaríkjaforseta og stefnu ríkis­stjórnar hans gagnvart aukinni hnattvæðingu og hernaði í Írak.

Framan af degi höfðu mótmælin verið hin friðsælustu en eftir að Bush hafði lokið fundahöldum með Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, og Benedikt páfa XVI fóru mótmælendurnir að láta ófriðlega. Eftir átök á milli lögreglu og mótmælenda í yfir klukkustund, þar sem flöskum, múrsteinum og öðru lauslegu var kastað í átt að lögreglumönnum, ákváðu þeir að beita táragasi á þá sem verst létu. Náði lögreglan tökum á ástandinu í kjölfarið. Einn lögreglumaður og einn mótmælandi voru fluttir á sjúkrahús vegna meiðsla og nokkrir ólátaseggjanna voru handteknir.

Bush hóf gærdaginn á því að ræða við Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, og að sögn þeirra beggja gekk fundurinn afar vel. Samband Bandaríkjanna við Ítalíu er mjög gott,“ sagði Bush eftir fundinn með Prodi, sem tók í sama streng og Bandaríkjaforseti. „Við erum í meginatriðum sammála um hvernig heimurinn eigi að vera,“ sagði ítalski leiðtoginn.

Fundur Bush með Benedikt páfa fór að mestu í að ræða stöðu kristinna í Írak. Sagði Bush að páfinn hefði lýst yfir áhyggjum sínum yfir aðstæðum kristinna í hinu stríðshrjáða landi, sem og annars staðar í Mið-Austurlöndum. Bush sagði ennfremur að páfinn vonaðist til þess að hinn forni samfélagshópur kristinna muni halda velli, þrátt fyrir að þeir yrðu fyrir ofbeldi á degi hverjum. „Við töluðum minna um stríðið í Írak,“ bætti Bush við.

Talið er að um þrjú prósent af þeim 26 milljónum sem búa í Írak séu kristinnar trúar. Margir þeirra hafa flúið landið á undanförnum vikum af ótta við ofbeldi múslima. Kristnar kirkjur eru nánast mannlausar eftir morð og mannrán á þeirra slóðum síðustu vikur.

Bush sagði enn fremur að heimsóknin í Vatíkanið hefði hreyft við sér og páfinn væri „mjög snjall og umhyggjusamur maður“. Þetta var í fyrsta sinn sem Bush hittir Benedikt páfa á opinberum vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×