Erlent

Hyggjast stöðva fótboltabullur

Yfirvöld í Danmörku ætla að fyrirbyggja uppákomur á borð við þá sem varð í landsleik Dana og Svía fyrir skemmstu.
Yfirvöld í Danmörku ætla að fyrirbyggja uppákomur á borð við þá sem varð í landsleik Dana og Svía fyrir skemmstu.

Yfirvöld í Danmörku hyggjast setja á laggirnar gagnagrunn sem hefur að geyma upplýsingar um allar helstu fótboltabullur landsins. Von er á lagafrumvarpi um málið innan fárra vikna og kemur það í kjölfarið á uppákomunni í landsleik Dana og Svía fyrir skemmstu þar sem ölvaður áhorfandi réðst að dómara leiksins.

Fjöldi fótboltabullna í Danmörku hefur vaxið hratt á undanförnum árum og á föstudag komu upp atvik í tveimur æfingaleikjum þar sem lögregla þurfti að hafa afskipti af áhorfendum. Markmiðið með frumvarpinu er að útiloka slíkar bullur frá völlunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×