Erlent

Loftslagsbreytingar ræddar

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sat í gær fund leiðtoga evrópskra smáríkja um umhverfismál í boði Alberts II fursta í tengslum við smáþjóðaleikana sem hófust í Mónakó í gærkvöldi.

Ítarlega var rætt um þær hættur sem fylgja yfirvofandi loftslagsbreytingum. Fram kom að loftslagsbreytingarnar hefðu meiri áhrif á smáríki en önnur ríki, ekki síst eylönd sem biðu verulegt tjón vegna hækkunar sjávarborðs.

Samþykkt var yfirlýsing þar sem hvatt var til aðgerða til þess að vega á móti útblæstri koltvísýrings í andrúmsloftið.


Tengdar fréttir

Óvenju mörg kynferðisbrotamál í rannsókn

Lögreglan á Akranesi rannsakar nú fjögur kynferðisbrotamál sem upp hafa komið á síðustu vikum. Öll málin hafa verið kærð; þrjár nauðganir og ein misneyting. Segir lög­reglan að öll málin séu langt komin í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×