Innlent

Óvenju mörg kynferðisbrotamál í rannsókn

Lögreglan á Akranesi rannsakar nú fjögur kynferðisbrotamál sem upp hafa komið á síðustu vikum. Öll málin hafa verið kærð; þrjár nauðganir og ein misneyting. Segir lög­reglan að öll málin séu langt komin í rannsókn.

Yngsti maðurinn sem grunaður er um kynferðisbrot er sautján ára, tveir þeirra eru um tvítugt og sá fjórði er á sjötugsaldri. Viðar Stefánsson, lögreglufulltrúi á Akranesi, segir að óvenjulegt sé að svo mörg alvarleg mál af þessum toga séu til rannsóknar hjá embættinu. Hann bendir þó á að tvö þessara mála hafi átt sér staða á Snæfellsnesi en rann­sóknar­deild lögreglunnar á Akranesi fer með alvarlegri mál sem upp koma hjá öðrum sýslu­mannsembættum á Vesturlandi.


Tengdar fréttir

Áhættumat verði kannað

Samráðsnefnd landssambanda innan ASÍ hefur óskað eftir því við Vinnueftirlitið að það kanni hvort áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnusvæði Kárahnjúkavirkjunar hafi að geyma forvarnir og áhættumat vegna kynferðislegrar áreitni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×