Erlent

Sjá enga lausn í náinni framtíð

Hvorki Kýpur-Tyrkir né Kýpur-Grikkir eiga von á því að af sameiningu hinna tveggja aðskildu hluta eyjunnar verði á næstunni.

Samkvæmt skoðanakönnun, sem gerð var á vegum Sameinuðu þjóðanna, telja 57 prósent grískra eyjarskeggja og 70 prósent tyrkneskra eyjarskeggja litlar líkur á samkomulagi í náinni framtíð.

Eyjan hefur verið tvískipt frá árinu 1974 þegar tyrkneski herinn réðst þangað inn eftir að Kýpur-Grikkir gerðu tilraun til valdaráns og hugðust sameina eyjuna Grikklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×