Erlent

Níutíu milljónir heita Wang

Borgarstjórinn í Peking.
Hann heitir Wang.
Borgarstjórinn í Peking. Hann heitir Wang. MYND/AFP

Algengasta ættarnafnið í Kína er Wang, en ekki Li eins og almennt var talið. Nærri 93 milljónir Kínverja bera nafnið Wang, en Li er næstalgengasta nafnið, borið af rúmlega 92 milljónum manna.

Þriðja algengasta nafnið er svo Zhang, og síðan koma Liu, Chen, Yang, Huang, Zhao, Wu og Chou.

Árið 2006 var gerð könnun á kínverskum nafnavenjum og samkvæmt henni var algengasta nafnið Li, en sú könnun náði aðeins til 296 milljóna manna eða innan við fjórðungs landsmanna. Samkvæmt nýrri greiningu á upplýsingum um nánast alla íbúa í Kína þykir hins vegar ljóst að flestir heita Wang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×