Erlent

Vilja afsögn Wolfowitz

Paul Wolfowitz
Paul Wolfowitz

Yfir 40 fyrrverandi háttsettir starfsmenn Alþjóðabankans hvöttu Paul Wolfowitz, forstjóra bankans, til að segja af sér í opnu bréfi í Financial Times í gær.

Átján fyrrverandi varaforstjórar eru í hópnum sem segir Wolfowitz hafa „misst traust og virðingu starfsfólks bankans“.

Wolfowitz hefur beðist afsökunar á þeim „mistökum“ að hafa fyrirskipað að ástkona sín, starfsmaður bankans, fengi stöðu- og launahækkun eftir að hún var færð til í starfi sem var gert til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra eftir að hann tók við sem forstjóri.

Búist er við því að stjórn bankans taki ákvörðun um örlög Wolfowitz síðar í þessari viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×