Erlent

Segist tilbúinn að gefa eftir

Ehud Olmert
Ehud Olmert

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagðist í gær reiðubúinn að gera „mjög sársaukafullar tilslakanir“ og semja um „víðtækar málamiðlanir“ við Palestínumenn til að ná friði.

En á hinn bóginn bætti hann því við að Ísraelar myndu halda áfram að ráðast á herskáa Palestínumenn, sem hafa beint vopnum sínum að Ísraelum, „þangað til þeim hefur verið tortímt“.

Þetta sagði Olmert í ræðu sem hann flutti í Jerúsalem á árlegum minningardegi um fallna hermenn í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×