Erlent

Lög um brotthvarf frá Írak

Þrátt fyrir að George W. Bush Bandaríkjaforseti hafi síðast í gær sagst ætla að beita neitunarvaldi á lög um brotthvarf Bandaríkjahers frá Írak, sögðust demókratar á Bandaríkjaþingi síðar í gær staðráðnir í að setja slík lög.

Samkvæmt lögunum myndi brotthvarf frá Írak hefjast 1. október næstkomandi og allir hermenn yrðu farnir frá Írak 1. apríl árið 2008.

Harry Reid, leiðtogi demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings, skýrði frá þessu í gær og sagði að Bush forseti væri „í afneitun“ gagnvart Íraksstríðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×