Erlent

Refsiverð samskipti við börn

Beatrice Ask, dómsmálaráðherra Svíþjóðar, ætlar að leggja fram frumvarp þar sem fullorðnum er bannað að leita eftir sambandi við barn á netinu þar sem markmiðið er greinilega að hitta barnið og misnota kynferðislega.

Verði frumvarpið samþykkt ganga Svíar lengra en aðrar þjóðir í baráttunni við barnaníðinga fyrir utan Breta.

Samkvæmt breskum lögum er hægt að dæma fullorðinn í allt að sex mánaða fangelsi fyrir að hafa samband við barn á netinu. Eigi misnotkun sér stað getur dómur hljóðað upp á tíu ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×