Erlent

Talinn búa sig undir stórsókn

S.P. Tamilselvan pólitískur leiðtogi Tamíltígranna segir að árásum verði svarað af fullum krafti.
S.P. Tamilselvan pólitískur leiðtogi Tamíltígranna segir að árásum verði svarað af fullum krafti. MYND/AP

Stjórnvöld í Sri Lanka hafa beðið sendiherra Noregs í landinu, Hans Brattskar, um að hætta við að fara til svæða Tamiltígranna á norðurhluta eyjunnar. Þetta þykir benda til þess að stjórnarherinn ætli að efna til stórsóknar gegn hersveitum Tamíltígranna.

Brattskar, sem hefur haft umsjón með samingaviðræðum stjórnarinnar og Tamíltígranna, fer reglulega á fund uppreisnarmannanna í norðri og hefur ekki áður verið beðinn um að hætta við slíkt ferðalag.

Friðarsamningar frá 2002 hafa verið lítt virtir síðastliðið hálft annað ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×