Finnar vilja lækka skatta 16. mars 2007 04:30 „
Efnahagsmálin ganga vel í Finnlandi og þá er stóra málið hvernig nota skal afganginn í ríkisfjármálunum. Á að lækka skatta? Á að bæta samfélagsþjónustuna? Allir vilja lækka skatta og allir lofa meiri þjónustu en spurningin er hvert hlutfallið á að vera," segir Björn Månsson, leiðarahöfundur Hufvudstadsbladet í Finnlandi. Jan Sundberg, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann í Helsinki, segir að það fyrirkomulag að kjósendur merki við stjórnmálamann og greiði þannig flokknum atkvæði sitt geri það að verkum að kosningaumræðan er á mjög einstaklingsbundnum nótum. „Þetta er fyrst og fremst spurning um hvort eigi að lækka skatta og þá hve mikið. Velferðarmál hafa eitthvað verið til umræðu og lífeyrismál en stóru málin eins og umhverfismál og innganga í Nató hafa ekkert verið á yfirborðinu en ef eitthvað gerist í Rússlandi þá kemur það örugglega til umræðu. Það er helst talað um tolla við landamærin en vöruflutningar fara mikið frá Rússlandi í gegnum finnskar hafnir," segir Jan. Umræðan hefur fyrst og fremst snúist um skattalækkanir og þá hversu mikið eigi að lækka virðisaukaskatt á mat. Tekjuskatturinn lækkaði á kjörtímabilinu í Finnlandi og nú vilja flestir flokkar lækka vaskinn, bara mismikið. Kosningabaráttan hefur verið róleg og tíðindalítil enda segja Jan og Björn engra stórra breytinga að vænta. „Þeir sem eru óákveðnir geta haft afgerandi áhrif á það hverjir sitja í ríkisstjórn og hver verður forsætisráðherra," segir Björn og telur líklegast að Miðflokkurinn, jafnaðarmenn og Sænski þjóðarflokkurinn verði áfram við völd. Ef jafnaðarmenn tapa stórt þá sé líklegast að Miðflokkurinn, Hægriflokkurinn og Sænski þjóðarflokkurinn myndi ríkisstjórn. Nokkur hneykslismál hafa komið upp í kosningabaráttunni. Í fyrsta skipti hefur mátt sjá neikvæðar sjónvarpsauglýsingar sem hafa lagst illa í kjósendur. Þá hefur ástalíf Matta Vanhanen forsætisráðherra, sem þykir litlaus og leiðinlegur, verið milli tannanna á fólki en fyrrverandi vinkona hans hefur gefið út bók um samband þeirra. Eiginmaður dómsmálaráðherrans hefur orðið uppvís að því að hafa borgað svart fyrir ráðherrann í síðustu kosningum. Talið er þó að þessum stjórnmálamönnum hafi tekist að snúa umfjölluninni sér í hag.
Mest lesið Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Vísar gagnrýni á bug og gefur lítið fyrir rök lækna Innlent „Svo fær maður svona helvíti á fyrsta opnunardegi“ Innlent Aftur brotist inn í Húrra Reykjavík Innlent „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent „Mitt mat að þetta sé ekki peninganna virði“ Innlent Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Erlent Leggja til að stakt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur Innlent Einn læknir sinnir þremur stjórnunarstöðum Innlent Segir uppspuna að Mogginn sé að hætta að koma út á prenti Innlent Fleiri fréttir Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Sjá meira