Síðasta vígi íslamista tekið með hervaldi 2. janúar 2007 05:00 Eþíópískir hermenn slappa af í norðanverðri Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu. MYND/AP
Hersveitir sómölsku bráðabirgðastjórnarinnar með liðsstyrk eþíópískra skriðdreka og orrustuþotna hafa fellt seinasta vígi hreyfingar íslamista, þriðju stærstu borg landsins, Kismayo, að sögn forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar, Ali Mohamed Gedi. Forsætisráðherrann hefur lofað vígamönnum íslömsku hersveitanna sakaruppgjöf, gefi þeir sig fram, en leiðtogar vígahópanna verði að svara til saka. Jafnframt boðaði forsætisráðherrann allsherjar afvopnun í landinu, en nóg hefur verið til af vopnum í Sómalíu eftir fimmtán ára borgarastyrjöld. Vígamönnum er jafnframt skylt að skila inn vopnum sínum. „Tími stríðsherranna í Sómalíu er liðinn og ef við náum þeim, þá afhendum við Bandaríkjamönnum þá,“ sagði Gedi. Bráðabirgðastjórn, studd af Sameinuðu þjóðunum, hefur stjórnað landinu í rúman áratug. Æðstaráð íslamista tók völdin í höfuðborginni Mógadisjú fyrir hálfu ári og stefndi að því að gera Sómalíu að ríki að íslömskum sið. Íslamistar eiga enn afdrep nærri landamærunum að Kenía, en þeir yfirgáfu Mógadisjú friðsamlega fyrir fáeinum dögum og flýðu undan herliði bráðabirgðastjórnarinnar og eþíópísku hersveitunum. Íslamistarnir hafa verið sakaðir um tengsl við al-Kaída, en þeir hafa hafnað þeim ásökunum. Leiðtogar hryðjuverkahópa hafa hvatt vígamenn íslamista til dáða og hótað skærum í líkingu við þær sem hrjá Írak um þessar mundir. Stjórnvöld Bandaríkjanna hafa verið beðin um aðstoð við eftirlit með lofthelgi og landhelgi Sómalíu. Heraflar bráðabirgðastjórnar-innar og Sómalíu fjarlægðu jarðsprengjur af hafnarsvæði Kismayo. Forseti Kenía hefur hvatt til allsherjarfundar um ástandið í Sómalíu og ráðamenn á Vesturlöndum hafa þrýst á að herlið, leitt af Afríkuríkjum, verði sent til landsins til að koma á jafnvægi.
Mest lesið Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins Erlent „Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ Innlent ICE dregur saman seglin í Minneapolis Erlent Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Innlent „Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“ Innlent Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Innlent Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Innlent Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Innlent Fleiri fréttir Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Talin hafa myrt móður sína og stjúpbróður fyrir skotárásina „Þjóðin syrgir með ykkur“ Leitarheimild byggði á löngu afsönnuðum ásökunum um svindl Opna aftur á flugumferð í El Paso eftir drónaflug frá Mexíkó Opnar sig í nýrri bók: „Ég þekkti ekki þessa menn eða þessa konu“ Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Jagland sviptur friðhelgi Furstadæmin þjálfa uppreisnarmenn í leynilegri herstöð Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Einn í yfirheyrslu og ráðist í húsleit í tengslum við hvarf Nancy Guthrie Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Sjá meira