Erlent

Eitt lítið skref fyrir Fugelsang, stórt skref fyrir Svía

Sænski geimfarinn Christer Fugelsang fór í sína fyrstu geimgöngu í gærkvöldi og nótt. Fugelsang og þrautreyndi Bandaríkjamaðurinn, Robert Curbeam, héldu áfram framkvæmdum utan á Alþjóðlegu geimstöðinni og tók ganga þeirra tæpar sjö klukkustundir.

Félagarnir komu fyrir burðarbita og nutu aðstoðar fjarstýrðs vélmennis sem laut stjórn geimfara í geimstöðinni. Fugelsang er einn sjö geimfara sem fóru til geimstöðvarinnar með geimskutlunni Discovery, sem skotið var á loft á laugardaginn. Geimfararnir annast nú framkvæmdir við geimstöðina en ferð þeirra lýkur í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×