Erlent

Glingrið truflar þráðlaust net

fallegtJólaskraut hefur neikvæð áhrif á þráðlaust net.
Fréttablaðið
fallegtJólaskraut hefur neikvæð áhrif á þráðlaust net. Fréttablaðið

Bandaríkin Jólaglingur getur haft svo mikil áhrif á þráðlaust net að styrkur þess minnkar um fjórðung. Þetta kemur fram í nýrri bandarískri rannsókn, sem fjallað er um á fréttavef danska blaðsins Berlingske Tidende.

Bandaríska fyrirtækið Airmagnets lét rannsaka áhrif jólaskrauts á þráðlaust net nokkurra skrifstofa og komst að því að styrkur þess minnkaði um 25 prósent.

„Þegar við skoðum jólaskraut, þá eru til dæmis glimmer og jólakúlur búnar til úr málmefnum, og málmur hefur einmitt áhrif á virkni þráðlausa netsins," sagði Anders Fosgerau, lektor við Tækniháskóla Danmerkur.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×